|
Í gær var samstarfsverkefninu Lundi ýtt formlega af stað á Suðurnesjum. Á hverjum mánudegi, frá og með gærdeginum, er hægt að sækja viðtöl hjá ráðgjafa SÁÁ, þ.e. göngudeildarviðtöl í 88 húsinu, Hafnargötu. Viðtölin eru pöntuð á bæjarskrifstofu RNB í síma 421-6700. Viðtölin eru fyrir þá sem lokið hafa meðferð, þá sem vilja nýta sér ráðgjafarþjónustuna þótt þeir hafi ekki farið í meðferð og aðstandendur áfengis-og vímuefnaneytenda sem vilja leita sér ráðgjafar. Fyrirhugað er að bjóða einnig uppá hópastarf þegar næg þátttaka er fyrir hendi og leggja af stað með fyrsta foreldrafræðslunámskeið í október og nóvember. Foreldrafræðslan er fyrir foreldra sem eiga unglinga í neyslu eða meðferð en gæti einnig nýst foreldrum sem telja börn sín í áhættuhópi. Það eru margir aðrir möguleikar fyrir hendi með þessu samvinnuverkefni sem forvarnarverkefnið Lundur er, og væri því áhugavert að heyra hverjar þarfir samsatarfsaðila í forvörnum eru , með það í huga að skoða hvort Lundur gæti mætt þeim þörfum með einhverjum hætti. SÁÁ hefur fengið styrk úr Forvarnarsjóði til að sinna fræðslustarfi til framhaldsskóla og íþróttahreyfingarinnar, þ.e. fræðslu til starfsmanna, þjálfara og annarra sem vinna með börnum. Þessar áherslur mætti hugsa sér að tengja viðbraðgsáætlun íþróttabandalags Reykjanesbæjar sem er ætlað að efla og styrkja uppeldis-og forvarnarhlutverk íþróttahreyfingarinnar í Reykjanesbæ og áherslum Fjölbrautskóla Suðurnesja í forvörnum og fíknivörnum sbr. forvarnaráætlun Reykjaensbæjar svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægt er að nýta þá þekkingu og þann grunn sem til staðar er í sveitarfélögunum á Suðurnesjum og er því lögð mikil áhersla á að þeir sem vinna að vímuvörnum í starfi sínu geti komið að verkefninu hver með sínum hætti. Nú þarf að taka næsta skref og þeir sem vilja taka þátt í samstarfinu þurfa að láta vita af sér, hvað þeir myndu vilja fá út úr samstarfinu og hvað þeir telja sig geta lagt í það. Nú er Ása Eyjólfsdóttir að taka við sem verkefnisstjóri forvarnar í eitt ár. Hún situr ásamt Herði Oddfríðarsyni SÁÁ og Erlingi Jónssyni Lundi í verkefnisstjórn þessa verkefnis. Endilega hafið samband við Ásu á netfangið:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
og komið á framfæri ykkar hugmyndum og væntingum. Erlingur Jónsson
|