|
Ákveðið er að vera í 88 húsinu að Hafnargötu 88, þar sem það stendur okkur til boða og virðist henta mjög vel fyrir okkur. Hefur Lundur 88 húsið út af fyrir sig alla mánudaga til að byrja með frá og með 3 sept. Ákveðið er að byrja þar mánudaginn 3. september Hægt er að panta viðtöl við ráðgjafa núna í síma 421-6700 Starfsemin: Ákveðið að SÁÁ hefji starfsemi sína mánudaginn 3 september nk. í Reykjanesbæ og verði með viðtöl vikulega á mánudögum til að byrja með. Hægt verður að bæta við einum degi í viku ef þörf verður fyrir hendi(t.d. fimmtudaga).Viðtalsþjónusta yrði til ca. Kl. 16.00 á daginn, í kjölfarið yrði síðan stuðningshópar/hópastarf og foreldrafræðsla. Fyrstu stuðningshóparnir ættu að geta farið af stað um miðjan september. Foreldrafræðslan færi af stað í október og yrði vikulega í 8 vikur(október og nóvember) og síðan aftur á vorönn. Foreldrafræðslan er fyrir foreldra sem eiga unglinga í neyslu eða meðferð en gæti einnig nýst foreldrum sem telja börn sín í áhættu. Dagskrá mánudaga myndi þá líta ca,svona út:
Kl. 10.00 – 16.00 Viðtöl hjá ráðgjafa Kl. 16.30 – 17.30 Stuðningshópar Kl. 18.00 – 18.45 Foreldrafræðsla Kl. 19.00 – 20.00 Hópastarf Markhópur: Grunnskólanemar Framhaldsskólanemar Einstaklingar í neyslu sem smita útfrá sér(draga nýja einstaklinga í neyslu) 20+ sem verið hafa í harðri neyslu, hafa lokið meðferð, þurfa eftirfylgd Einstaklingar í eftirmeðferð Aðstandendur fíkla(börn, foreldra) · innkoma strax við grun · mikilvægt að kennarar og annað starfsfólk skóla geti leitað strax ráðgjafar, hvernig á að bregðast við, hvað er æskilegast að gera t.d. í gegnum Vaktsíma – gegnum unglingasímann 824-7666, ráðgjöf allan sólarhringinn · unglingasími – neyðarsími fyrir börn og unglinga · Ráðgjöf og fræðsla til að efla starfsmenn í greiningu og inngripum(snemmtæk íhlutun); lækna, sálfræðinga, félagsráðgjafa, námsráðgjafa, skólahjúkrunarfræðinga, sérfræðinga barnaverndar, aðra starfsmenn · Samráðsfundir FFR, FRÆ, HSS og fleiri aðilar · tenging við verkefni á vegum Reykjanesbæjar eða samstarfsaðila í forvörnum · samfélagsleg uppbygging, styrkja grasrótarstarfið. Framlög: SÁÁ leggur fram þekkingu RNB leggur fram þjónustu m.a. vegna tímapantana í viðtöl hjá SÁÁ 88 húsið leggur til aðstöðuna Erlingur Jónsson forsvarsmaður Lundar, sjálfboðaliðastarf, fjáröflun Verkefnisstjórnun/tengiliðir: Hörður Oddfríðarson SÁÁ tengiliður
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
s:824-7635 Hera Ósk Einarsdóttir RNB
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
s:861-1533 Erlingur Jónsson, Lundur
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
s:864-5452 Herði og Heru falin framkvæmd málsins og starfa sem tengiliðir samstarfsaðila. Erlingur Jónsson
|