Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Desember 2007 arrow Aðsent frá móður
Aðsent frá móður PDF Prenta
fimmtudagur, 20 desember 2007

Litla stelpan mín.

Ég þekki þetta af eigin raun, á barn sem er á valdi fíknarinnar. Þegar foreldrar eignast lítið barn þá er allt svo yndislegt, barnið þitt litla er svo saklaust og fallegt. Barnið stækkar og verður unglingur, allt er í lagi eða svo heldur maður þangað til annað kemur í ljós. Maður les fréttirnar: Keyrði undir áhrifum fíkniefna, tekinn með svona mikið magn af fíkniefnum, braust inn undir áhrifum fíkniefna, barði mann og annan os.fr Þetta er daglegt brauð, maður les þetta og heldur svo áfram venjulega lífinu sínu ÞANGAÐ TIL....... einn daginn vakna ég við vondann draum, litla saklausa sæta stelpan mín er farin að nota fíkniefni, þetta átti ekki að koma fyrir hjá MÉR. Ég sem reyndi að gera allt svo rétt.......

Litla stelpan mín er 18 ára gullfalleg stúlka í dag, hún notar fíkniefni daglega, hún byrjaði BARA á því að prófa að reykja hass, BARA í EITT skipti. Frá fyrsta degi kom í ljós að hún er FÍKILL, það var ekki aftur snúið.
Núna eru að koma jól og litli engillinn minn er einhversstaðar þarna úti, hún er ekki tilbúin til að leyta sér hjálpar, hún er ekki tilbúin til að koma til mömmu og biðja um hjálpina sem hún VEIT að bíður hennar. Nei, fíknin er svo sterk, hún yfirtekur litlu stelpuna mína og heldur henni í heljargreipum.
Ég veit ekki hvernig jólin verða á þessu heimili, hef sem betur fer ekki upplifað jól áður með barn í neyslu, en þessi fyrstu jól eru að koma núna og ég verð að segja alveg eins og er: HNÚTURINN Í MAGANUM ER STÓR !
Biðjum fyrir öllum sem eiga um sárt að binda um hátíðirnar.

Erlingur Jónsson

Smellir: 3371
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?