Velkomin
Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt kjark til að breyta því sem ég get breyttog vit til að greina þar á milli.
|
Forsíða Gagnasafn Desember 2007 Berum virðingu fyrir öðrum
|
Berum virðingu fyrir öðrum |
|
|
|
fimmtudagur, 13 desember 2007 |
|
Þeir sem hafa gengið í gegnum það svartnætti að vera með einstakling í neyslu er ekki skemmtileg reynsla, hvort sem það er barnið manns, maki eða foreldri. Þá er þetta oft á tíðum einn versti tími ársins. Hvernig verða jólin eða áramótin. Hér förum við að kvíða fyrir hátíðisdögum en ekki að gleðjast eins og ætti að vera. Það er því miður farið að hafa áhrif á marga nú í desember mánuði, ýmis vanlíðan og kvíði. þar sem allir eru að keppast við að reyna að gleðja aðra á mismunandi hátt. Sumir eru búnir að plana ýmislegt flott, mikið og skemmtilegt en hafa hvorki tíma, fjármagn né getu til að framkvæma það. Fer þá í sjálfsvorkunn, þunglindi og finnst allt ömulegt sem það er að gera og halda að allir séu að tala um sig. En þetta er yfirleitt bara allt í höfðinu á okkur. Við þurfum ekki að gera svona mikið enda er það oft alveg út í hött að láta sér á annað borð detta slíkt í hug. Bara að minnka við sig verkefnin, það er alltaf hægt að gera þau seinna þegar maður er tilbúin og í stuði til þess, þá er líka gaman að eiga við hlutina og hugarfarið jákvætt og gera það í sátt við sjálfan sig og aðra.
Láta hjartað ráða för en ekki hausinn, hann á það til að blekkja okkur og leiða okkur á villigötur því miður. Við eigum heldur ekki að láta aðra hafa áhrif á okkar líðan, það á engin rétt á því. Það á hver og einn að fá að gera hlutina eins og hann vill og hefur getu til án þess að það sé verið alltaf verið að gagnrýna það. Það er enginn eins og við viljum fá vera eins og við erum. Það breytir enginn öðrum, einungis sjálfum sér og þá breytist viðhorf okkar og vonandi annara.Enn og aftur vil ég árétta það, til þess að hjálpa öðrum þurfum við að skoða hvað við getum fyrst gert fyrir okkur sjálf. Þeir sem eru aðstandendur ættu endilega að panta tíma hjá Lundi til að fá einhver svör fyrir sig, því að annars er yfirleitt verið að taka rangt á málum. Við höldum alltaf að við séum að gera rétt en í flestum tilfellum eru það ekki svo og vegna þess kunnáttuleysis og hvað við erum orðin meðvirk og veik án þess að gera okkur grein fyrir því erum við einungis að viðhalda ástandinu og gera það verra. Sem sagt að hjálpa þeim veika að verða veikari og verða veikari sjálf, ef ekkert er gert. Gerum betur, við getum það. Látum ekkert eyðileggja fyrir okkur hátíðina. Berum virðingu fyrir öðrum. Gleðileg jól F.h Lundar/Erlingur Jónsson Erlingur Jónsson
|
|
|