|
Alveg er það nú skammarlegt, að á forvarnardegi skóla hér í Reykjanesbæ sem átti að vera með foreldrum barnanna í skólanum. Foreldrarnir fengu sendan póst heim með börnunum, tölvupóst, sms og einnig var hringt í þau. Hugsið ykkur, eftir alla þessa fyrirhöfn mættu aðeins þrír foreldrar sem vilja vita hvað er að gerast hjá börnum sínum, hinir ættu nú bara að skammast sín. Hvað er að, eru foreldrar þessara barna svona uppteknir eða kannski bara sama, “kennararnir sjá um þetta”. Á þessu stigi ættu foreldrar að fara að hugsa sín mál, hvað sé í gangi. Ég trúi því ekki að ykkur sé alveg sama hvað er að gerast hjá börnunum ykkar og ykkur sjálfum...
Frábært framtak hjá lögreglunni í Reykjanesbæ um helgina þar sem 12 manns voru handteknir í fíkniefnaaðgerð. Þetta er eitthvað sem við eigum að styðja og vera vakandi fyrir. Með góðri samvinnu getum við bætt samfélagið okkar og hjálpað þeim sem eru veikir. Þeim er bara gerður greiði ef þeir eru handteknir. Það eru margir þarna úti sem vilja betra líf en þeim er haldið þarna gegn þeirra vilja. Lögreglan leitar nú til almennings um að koma upplýsingum sem hann býr yfir um meint fíkniefnabrot á netfang lögreglunnar á Suðurnesjum.
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
virk og hreinsum til, þá gerum við góðverk. Hjá Líkamsræktastöðinni Átaki á Akureyri er búið að fá leyfi til að selja áfengi, á stað þar sem fólk er að reyna að byggja sig upp líkamlega og andlega, og oft á tíðum að berjast við einhverja fíkn. Ég vona að þeir sem reka stöðvarnar hér á Suðurnesjum leggist ekki svo lágt eins og þeir hjá Átaki á Akureyri og að bæjarráð Reykjanesbæjar skoði vel hver forvarnarstefna þeirra sé, fái þeir fyrirspurn um síkt. Kveðja Elli. Erlingur Jónsson
|