Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Nóvember 2007 arrow Verslunarmannahelgin framundan.
Verslunarmannahelgin framundan. PDF Prenta
fimmtudagur, 28 júlí 2011
Nú er ein af stærstu DJAMM og ferðahelgum ársins framundan, þar sem fólk ætlar að skemmta sér og öðrum.

En það vill oft fara öðruvísi en maður ætlar, sérstaklega þar sem vín og önnur vímuefni eru höfð um hönd og verst hjá þeim sem kunna ekki að fara með það og hafa ekki stjórn á því.

Margir lenda í því að leggja hendur á aðra og eða verða lamdir sjálfir og það oft  illa, öðrum verður misboðið kynferðislega, þjófnaðir fl og fl.

Oftast út af  stjórnlausri neyslu áfengis eða fíkniefna.

Svo eru það veikasta fólkið sem ber að varast “SÖLUMENN DAUÐANS” sem eru á hverju strái tilbúnir að rétta fram hjálparhönd og gera aðra að þrælum sínum.

Fyrir þessar hátíðir er mikið framboð af fíkiniefnum, landa og öðrum vímugjöfum.

Segið NEI og látið vita af þessum sölumönnum hvar sem þeir eru og hverjir sem þeir eru, já þetta er dauðans alvara.

Fíkniefnasíminn er 800-5005

Oftast nær eru þetta veikir einstaklingar sem eru hjálpar þurfi og lenda því í hinum ýmsu aðstæðum sem þeir kæra sig ekkert um að vera í. Hafa gert sjálfan sig að fifli með óábyrgu framferði sínu, sært eða misboðið öðrum líkamlega, andlega, kynferðislega eða eitthvað þaðan af verra.

Allt það sem gerist á helgum sem þessum, hvort sem það er gerandinn eða þolandinn þá  tengjast þar inn aðstandendur og það margir.

Aðstandendur sem líða fyrir þetta og verða ekki síður fyrir barðinu á þessari vanlíðan þegar þeirra nánustu lenda í því að gera einhverjum eitthvað eða verða fyrir því.

Marga hef ég talað við sem eru enn í neyslu en eru að bíða eftir rétta mómentinu.Það er alltaf verið að ýta þessu á undan sér, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár vegna ótta og  kvíða við að taka á þessu, taka þetta skref og þurfa að horfast í augu við það sem maður hefur gert öðrum og ekki síst sjálfum sér. En þetta fer ekkert frá okkur, heldur fer þessi ótti, gremja, kvíði, reiði og fl bara í geymslu innr

a með okkur og bíður þar átekta eftir því að komast út og gerir það þá yfirleitt á versta tíma og þá með látum.  Það mun alltaf bætast við ef ekkert er að gert. Þegar ákvörðun hefur verið tekin, þá er ekkert

að óttast,  það er stuðningur allsstaðarBiðjum um aðstoð, hún kemur ekki til okkar.

Það er enginn skömm, frekar skömm að gera það ekki.Nokkrar manneskjur sem eru að bíða eftir innlögn og hafa beðið í allt að 3 mánuði sem er algjörlega óviðunnandi og óvíst hvenær þau komast þangað vegna þess að biðlistinn er mikill og vegna sumarleyfa þá er það alltaf spurning hvort þau haldi það út og séu tilbúin þegar kallið kemur.

Það er mjög slæmt að komast ekki að þegar aðili hefur ákveðið að gera eitthvað í sínum málum og hefur vilja til þess, reynir þá á hversu ákveðin/nn viðkomandi er í að snúa við blaðinu og hefja nýtt líf.

Þá er mjög brýnt að leita til ráðgjafa eða einhvers sem getur veitt stuðning og þar kemur t.d LUNDUR vel inn á meðan beðið er, ekki síst fyrir aðstandendur og aðra nákomna. Hvort sem maður er alkóhólisti, fýkill aðstandandi eða annað, þá er það er mjög mikið áunnið þegar búið er að taka ákvörðum um að gera eitthvað fyrir sig og stíga fyrsta skrefið, þá er þungu fargi af manni létt.

Fyrsta skrefið er einfaldlega bara að hringja eða tala um þetta við einhvern faglegan aðila, góðan vin/vinkonu og síðan heldur maður áfram þangað sem það leiðir mann. . 

 

Dagskrá Lundar er óbreytt á mánudögum og koma ráðgjafar aftur til starfa eftir sumafrí mánudagin

n 8.ágúst og heftst með viðtölum við rágjafa og eru pönntuð í síma 421-6700

16.30 – 17.30 stuðnings grúppa

18.00 – 20.00 foreldrafræðsla. ( fyrir alla foreldra )  

Njótið og farið varlega

Erlingur Jónsson

772-5463  

Smellir: 2110
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?