|
Það er mikið að gerast í okkar litlu bæjarfélögum hér á Suðurnesjum hvað varðar neyslu áfengis, fíkniefna og afleiðingar þess á fjölskyldur okkar, ofbeldi og fl. Ekki bætir úr atvinnuleysi og mikið óöryggi.
Lundur hefur ásamt öðrum farið í skóla með fræðslu fyrir foreldra sem og ungmenni meðal annars til að skapa umræðu um ástandið sem skapast af neyslu áfengis, fíkniefna og afleiðingar þess á neytendur og ekki síður aðstandendur. Það er ekki spurning HVORT börnum okkar verði boðin fíkniefni eða áfengi heldur HVENÆR. Þá er gott að vera búin/nn að tala við þau um þessi mál og gera þeim grein fyrir hættunni, þannig að þau hafi val og ekki síður styrk til að segja NEI TAKK. Ég á von á að þú foreldri gott hafir fylgst með því hvað hefur verið að gerast í samfélagi okkar og sjáir hversu alvarlegt þetta er. Flest eigum við börn eða barnabörn sem við berum ábyrgð á. Nú nýverið hafa nokkrir ungir menn látist af völdum þessa sjúkdóms hér á Suðurnesjum. Guð gefi ykkur æðruleysi til að sætta ykkur við það sem þið fáið ekki breytt, kjark til að breyta því sem þið getið breytt og vit til að greina þar á milli. Ekki veit ég hvað þarf mikið til að fólk opni augum fyrir þessum harmleik, komi og fræðist, þó ekki væri nema til þess eins að vita betur hvað það getur gert í málunum og hvað ekki, ef eitthað gerist. Fræðsla er ekki bara fyrir þá sem hafa vandamál til staðar, heldur er það fyrirhyggja að forvörnum að vera betur undir það búin ef eitthvað gerist hjá okkur sjálfum. En flestir hugsa....... það gerist ekkert hjá mér og mínum, það er einhvernvegin bara eðli mannsins að hugsa þannig, en þetta eru orðin það alvarleg mál og algeng að við hreinlega bara verðum að breyta hugsunarhættinum. Afneitun, stolt og kvíði, geta oft haft mjög alvarlegar afleiðingar og óttinn við hvaða álit aðrir hafa á okkur ef eitthvað spyrst út ,STÓRA fjölskyldu leyndarmálið sem enginn má tala um, en viti menn, það vita þetta ótrúlega margir, svo miklu fleiri en þú heldur. HVER ER NÆSTUR ? Erlingur Jónsson.
|