Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Eftir hverju er verið að bíða ? PDF Prenta
fimmtudagur, 24 mars 2011
Lundur forvarnarfélag gaf út bækling nýverið er ber heitið VEISTU HVAÐ BARNIÐ ÞITT ER AÐ GERA og bar Íslandspóstur hann í öll hús á Suðurnesjum í byrjun mánaðarins, vona ég að flestir hafi lesið hann og noti hann sér til fræðslu og stuðnings.

Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa til ykkar núna eru þau fjölmörgu símtöl sem ég fæ frá ykkur foreldrum um hvað ber að gera þegar okkur grunar að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Veit ég það vel að það er erfitt að taka það skref að mæta á staðinn, hvort sem það er hjá okkur eða einhverjum öðrum.

Það sem mér finnst verst er að síðan heyri ég ekkert meira fyrr en einhverjum mánuðum seinna, ef ég heyri þá eitthvað. Er þá staðan oft orðin slæm.

Hver dagur og hver vika getur skipt sköpum í þessum málum og hvort sátt og samstaða verði innan fjölskyldunnar eða ekki.

En að taka þá ákvörðun að bíða og sjá til getur valdið kvíða, svefntruflunum og skapað slæmt andrúmsloft innan fjölskyldunnar þannig að samskiptin verða óeðlileg sem þá oft leiða til annara vandamála.   

Lundur vill þakka þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem studdu okkur við gerð bæklingsins.

Erlingur Jónsson

Smellir: 4767
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3455338