Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Hættum að horfa í hina áttina. PDF Prenta
fimmtudagur, 28 október 2010

Frábært framtak hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu með góðri samvinnu fleiri lögregluembætta að komast yfir slíkt magn af fíkniefnum á einu bretti og um leið uppræta glæpagengi.

Segir þetta okkur ekki eitthvað ?  Þetta er nú samt bara smá brot af því sem er í gangi, því er nú ver og miður. Hættan er mikil á að okkar fólk lendi í því að ánetjast þessum FJANDA, ættum við því að hafa augun opin og láta vita. Ekki HORFA Í HINA ÁTTINA, það gæti næst orðið þitt barn ( fólk ). Ungt fólk sem er að byrja að fikta er því miður alltof oft fljótlega komið í sölu á fíkniefnum, þessi heimur gerir ekkert annað en að versna, og það sem meira er: hann versnar hratt.

Neyslan á fíkniefnum og öðrum vímugjöfum hefur stóraukist hér á Suðurnesjum, þá séstaklega hjá “því miður“ mjög ungu fólki. Fjöldi annara vandamála skapast tengd fíkniefnum.

Mikið er um ræktun, einnig virðist landabruggun vera að aukast svo um munar hér á svæðinu. Allt er þetta ætlað til sölu, markhópurinn er ungt fólk og fólk sem hefur lítið á milli handanna.

Hinn svo kallaði „landi“ er tiltölulega ódýr vímugjafi en ekki síður skaðlegur. Slagsmál, ofbeldi og almenn reiði virðist vera að festa rætur hér.

Hvað er til ráða ?  Ég held að fólk verði að fara að líta gaumgæfilega og af fullri alvöru í kringum sig og gera eitthvað áður en illa fer. Það er mjög auðvelt að ýta hlutunum á undan sér og láta sem ekkert sé, en hvar endar það. Vandamálin aukast, sársaukinn, kvölin, óttinn, reiðin.

Ástandið versnar og endar jafnvel með sundrung  á heimilunum.

Það er ekki gott að vera á þeim stað að óttast,  þora ekki að segja eða gera neitt í málunum, vera hræddur um að mistakast, klára ekkert af því sem manni langar til að gera. Það er erfitt og ekki góður staður að vera á.

Við erum sjálf hinir mestu snillingar í því að láta okkur líða illa. Við getum betur, það veit ég, það sem þarf er bara taka skrefið.

Erlingur Jónsson

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Smellir: 4175
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3455287