Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Dagskrá arrow Dagskrá Al-Anon
Ferðahelgar þessa sumars á enda. PDF Prenta
föstudagur, 27 ágúst 2010

Nú eru þessum stærstu ferðahelgum sumarsinns lokið í bili, virðast þær hafa gengið nokkuð vel að sögn lögreglu og staðarhaldara þeirra hátíða sem haldnar voru þetta árið.

 

Og eins og við vitum flest þá er bakkus oft fastur ferðafélagi margra, en það sem er enn verra er að fíkniefnin eru því miður orðin það líka. Sumir ætla að gera sér þessar helgar að féþúfu, sama hvaða afleiðingar það hefur í för með sér.
Sem betur fer þá hafa fíkniefnalögreglan svo og aðrir eftirlitsmenn stundum hendur í hári þeirra, en það er því miður bara svo lítið brot sem næst. Ofbeldi, þjófnaðir og misnotkun af ýmsu tagi er fylgifiskur þess að misnota hina ýmsu vímugjafa.
Alltof margir erfiðir og ljótir hlutir gerast þessar helgar. Mörg innbrot eru framin hvort sem fólk er heima eða að heiman, afbrotamenn setja það ekki fyrir sig hvort fólk er heima, slíkt er samviskuleysið og siðblindan.
Sumir þurfa áfallahjálp eftir slíka innrás. Margir sem eiga í vandræðum með áfengi, fíkniefni
skyld efni og eru í afneitun á það hversu mikið er verið að nota, nú og svo hinir sem gera sér fyllilega grein fyrir sínum vanda en eru svo oft að fresta því að leita eftir aðstoð vegna þess hvað mikið er að gerast yfir sumarmánuðina, hugsa sem svo......... ÉG GERI ÞETTA BARA Í HAUST. Stundum er það líka gert vegna annara, vegna þess að mörg okkar láta stjórnast af öðru fólki og eða aðstæðum. Það er orðið svo mikið að gerast nánast allar helgar sumarsins, bæjarhátíð hér og bæjarhátíð þar, engu má missa af, frestum þessu aðeins lengur.
En við skulum gera okkur grein fyrir því að ástandið versnar bara eftir því sem við drögum þetta á langinn, og ef þú vilt vita það lesandi góður þá gerir ástand okkar nánustu, æjjji þú veist þessara sem þykir svo mikið vænt um þig, ekkert annað en að versna líka. Sem betur fer er það líka svo að margir geta skemmt sér, fengið sér í glas og haft gaman að, stun
dum eiga þeir líka einhverja að sem hafa áhrif á líðan þeirra vegna misnotkunar á vímigjöfum, það eitt og sér er næg ástæða til að skoða málið að gera eitthvað fyrir sig sjálfan, áhrif þess að gera ekki neitt geta varað LENGI – LENGI.
Hjá Lundi er meðal annars boðið uppá foreldrafræðslu sem virkar  mjög vel fyrir þá aðstandendur og  foreldra sem eiga erfitt vegna ástandsins, vita ekki hvert þau geta leitað eða hvað þau eiga að gera. En hver og einn þarf að skoða stöðu sína og líðan vel og vandlega.
Til að geta hjálpað öðrum verðum við fyrst og fremst að byggja okkur sjálf upp, fá faglega ráðgjöf og fræðslu fyrir okkur sjálf. 

 

Lundur forvarnarfélag

Suðurgötu 15 nýtt húsnæði

Erlingur Jónsson

www.lundur .net

Smellir: 4309
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?