Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Febrúar 2007 arrow Fyrirhyggja að forvörnum. Ofsalega eiga nú sumir bágt.
Fyrirhyggja að forvörnum. Ofsalega eiga nú sumir bágt. PDF Prenta
fimmtudagur, 15 febrúar 2007

Allveg er það nú með ólíkindum hvað mannskepnan leggur sig lágt , það fær ekkert að vera í friði. Nú eru menn farnir að ráðast á griðarstað barnanna, leikskólana og gorta sig eflaust af því, hvílíkir naglar. Menn ættu nú að skammast sín fyrir svona lagað og biðjast afsökunar, þó svo að þetta hafi verið gert í einhverju rugli, þá er það enginn afsökun. Þeir sem gera svona lagað eiga verulega bágt og þurfa að leita sér hjálpar. Ef að einhver hefur vitneskju um svona athæfi eða annan verknað, s.s  dópsölu og eða eitthvað annað ætti viðkomandi að láta vita af því.

Ekki vera að bera þessar byrgðar fyrir aðra, við höfum nóg með okkur sjálf. Látum þá bera ábyrgð á því sem þeir gera annars heldur þetta bara áfram. Þetta er stór hluti af sjúkleikanum og vanlíðaninni, það er að þegja og slæmt fyrir alla. Þannig var þetta hjá mér, þorði aldrei að segja neitt og gerði allt rangt, hélt ég væri að gera gott. Við getum breytt þessu ferli með því að gera eitthvað í okkar málum og nýta okkur þá aðstöðu sem vonandi kemur einhvern tíman hingað á Suðurnesin og þurfum þá ekki að sækja hana til Reykjavíkur, og verður það mikil gleðistund þegar sú stund kemur.

Það er ekki spurning hvort heldur hvenær. Þeir sem að forvarnar málum koma og aðrir forsvarsmenn okkar byggðalaga ættu nú þegar að vera búnir að sjá hve alvarlegt þetta er orðið hjá okkur. Nú duga engin vettlingatök. Framkvæma, Framkvæma, Framkvæma.


Erlingur Jónsson

Smellir: 2531
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?