Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Til skoðunar PDF Prenta
laugardagur, 27 mars 2010

Ein af mínum mörgum bæjarferðum.Fór með einstaklingi  í viðtal inn á bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans, mjög gott svo langt sem það náði, viðtalið endaði með því að geðhjúkrunarfræðingurinn lagði til að einstaklingurinn færi í annað viðtal,  þá hjá sálfræðingi og/eða geðlækni, var ákveðið að svo yrði.

Geðhjúkrunarfræðingurinn ætlar að hafa samband við viðkomandi þegar hægt er að koma því við, þ.e.a.s þegar röðin verður komin að þessum einstaklingi, það verður örugglega bið á því, vegna þess að það er EINN sálfræðingur og EINN geðlæknir með viðtöl fyrir geðdeild Landspítala Íslans EINN dag í viku, vegna niðurskurðar. Þetta ástand er svo með ólíkindum að það er varla hægt trúa því, en svona er þetta samt.

Ef við þurfum einhverntíman á þessari andlegu þjónustu að halda þá er það í ástandi sem þessu, þá meina ég allt okkar atvinnuleysi, efnahagshrun o.s.frÞað er marg sannað að neysla, hvort sem það er áfengis eða vímuefnaneysla EYKST mikið við andlega vanlíðan.

Hvernig er hægt að bjóða okkur upp á þetta ?

Hvernig eigum við að geta gert eitthvað fyrir okkur ef engin er þjónusta ?.

Loksins þegar fólk er tilbúið að gera eitthvað í sínum málum, leita sér aðstoðar, þá er komið að hálf læstum og harð læstum dyrum. En það eru til fl staðir, það eru til úrræði meðan ástandið er svona slæmt. En þjónustan er allstaðar í lágmarki, því miður. Það er alltaf það sama sem vantar PENINGAR. Á meðan  atvinnuleysið eykst, fjölgar þeim sem þurfa aðstoð fagaðilla. Léleg þjónusta og bágur fjárstuðningur við heilbrigðisþjónustu og mannúðarsamtök margskonar, bitnar á endanum  illa á ríki og bæ.Lítum til framtíðar. 

 

Þú hefur vandamál 

Ef þú ert með ungling og/eða maka sem á við áfengis eða annan fíknivanda að stríða, þá átt þú og þeir sem standa honum næst, yfirleitt við mikið vandamál stríða. Athugaðu hvar ÞÚ ert staddur/stödd með sjálfan þig, alltaf betra að gera það í samráði við fagaðila, farið yfir þessi mál. Fáið faglegar ráðleggingar, það borgar sig. 

 

Sorgmæddur. 

Ég skil ekki alveg hvað er að gerast innan í höfðinu á fólki sem hefur séð allt í kring um sig og sína nánustu, vini sína og jafnvel fjölskyldu berjast fyrir lífi sínu, takast á við sjálft sig, mistakast aftur og aftur. Vitandi það hversu fjandi erfitt þetta er, hversu mikil geðveikin er, virðingarleysið og siðblindan þarna í þessum heimi, svo ég tali nú ekki um hvað  þetta er fjandi harður heimur að vera í.

Hvernig getur manneskju dottið í hug að byrja að prófa eftir að hafa fylgst með þessu öllu saman ? 

Mér þykir þetta svo SORGLEGT að ég finn til, verð reiður, bitur og sorgmæddur. Óheiðarleikinn strax byrjaður að grassera, búinn að festa sig í sessi og afneitunin sprottin upp. Vá hvað þetta gerist hratt.

Að horfa upp á þetta og geta ekkert að gert er BARA sorglegt. Enn og aftur sannast hvað maðurinn er vanmáttugur.

Af hverju get ég ekkert gert ? Úffff hvað þetta er erfitt.Taktu eftir.......... svona lagað er að gerast í kringum þig , því miður allt alltof oft.

En ég veit að ég get ekkert gert fyrr en viðkomandi vill gera eitthvað sjálfur og biður um hjálp og er tilbúinn í að legga sig í hendur þeirra sem kunna til verka og þekkja þessi mál út og inn.Minni á dagskrá Lundar á mánudögum, ráðgjöf, stuðningur og foreldrafræðsla.

Erlingur Jónsson

772-5463

Smellir: 4480
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3115890