Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Hvað er að gerast ? PDF Prenta
miðvikudagur, 03 mars 2010
 

Ekkert lát er á hringingum og hjálparbeiðnum vegna einhverskonar neyslu unglinga og þá um leið viðurkenningu foreldra sem hafa verið í afneitun og  meiri vitneskju  þeirra  um hvað er í gangi.  Vilja þau koma og ræða málin hvort eitthvað sé hægt að gera, hvað þau geti gert og hvað þeim er fyrir bestu.

        

Einnig vilja sum af þeim sem eru í neyslu koma og gera eitthvað þegar þau eru komin með ráð og rænu. ÚFFF þetta er fjandi erfitt en sem betur fer ekki ógerlegt ef það er vilji. Það er alveg sama hversu fólk er langt leitt í neyslu, búið bæði líkamlega og andlega, hvort sem það er ungt eða aldrað og hvort það er áfengi, fíkniefni, læknadóp eða aðrir  vímugjafar, ÞAÐ ER ALLTAF VON EF ÞAÐ ER VILJI. Bara hugsa vel hvað er búið að gerast, hver er staðan er í dag, vil ég lifa við þetta ástand.

Takið ákvörðun og framkvæmið, Það er allt hægt.

En á þessum erfiðu tímum sem við búum við í dag og öllum þeim vandamálum sem hafa skollið yfir fjölskyldurnar okkar, atvinnuleysi, gjaldþrot ofl tala frambjóðendur okkar um fjölskylduvænan bæ, skapa öflugri atvinnutækifæri, efla íþróttir þar sem þær eru góðar forvarnir og þar fram eftir götunum.

En ástandið er slæmt NÚNA og það þarf að gera eitthvað NÚNA, atvinnuleysi  hefur vægast sagt slæm áhrif á fjölskylduna. Það kemur rót á hana og veldur því erfiðleikum,spennu, kvíða ofl bæði hjá foreldrum og  þar af leiðandi börnum þeirra og hefur það líka áhrif á nám þeirra.

Það er alltaf að koma upp sú staða að fólk er að leita aðstoðar vegna þessa. Við meigum ekki vera svona skammsýn. Ýmis fyrirtæki  byrjuðu vel en eru svelt í dag.

Virkjun byrjaði vel, hvað nú ? Lundur fékk góðar undirtektir og hvatt til að halda áfram, hvað nú ? ofl ofl fyrirtæki / félög sem fólk  þarf á að halda. Mörgum er hjálpað að komast af stað með góð verkefni síðan er dregið úr framlögum áður en þau eru búin að festa sig í sessi og tryggja sína stöðu.

Engin furða að svo mörg fyrirtæki eru að leggja upp laupana hér á Suðurnesjum. Það liggur við að maður þurfi að eyða allri sinni orku í að vera á hnjánum  nánast alla daga, GRÁTA út fjármagn til að geta haldið áfram, EINN DAG Í EINU, svona vinnubrögð geta ekki gert annað en að draga úr getu manna til að halda áfram, því er nú ver og miður. Mér finnast   frambjóðendur og ráðamenn SUÐURNESJA  vera með hulu fyrir augunum gagnvart þessu og sjá ekki alvarleika þessa máls. Ef það er ekki næg atvinna  eins og staðan er í dag geta börnin okkar ekki stundað öll þau áhugamál sem í boði eru vegna þess hve það er kostnaðarsamt er. Það er ekki góð forvörn, svo má lengi telja.

Vonandi  með nýju fólki við stjórnvölin  á Suðurnesjunum  komi nýjar áherslur, skammsýnin í mannúðarmálum  bíði ekki lægri hlut, þar sem allir frambjóðendur  hafa jú hag og heilsu fjölskyldunnar í fyrirrúmi, þá ætti þetta  að breytast ekki satt.

Gangi okkur öllum vel.

Erlingur Jónsson 

772-5463

Smellir: 4732
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3115668