Velkomin
Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt kjark til að breyta því sem ég get breyttog vit til að greina þar á milli.
|
Forsíða
|
Lundur, forvarnarfélag. |
|
|
|
sunnudagur, 22 nóvember 2009 |
|
Ráðgjöf - eftirfylgni – stuðningur - forvarnir Lundur forvarnarfélag er félag sem leitast við að styðja þá einstaklinga sem vilja og þurfa aðstoð vegna ýmissa aðstæðna.
Markmið með þessu starfi er að styðja sérstaklega við bakið á þeim sem eru að fara í eða koma úr meðferð vegna neyslu áfengis, fíkniefna og annarskonar fíknar. Einnig leggjum við mikið kapp á að hjálpa aðstandendum þeirra, en þeir þurfa ekki síður á aðstoð að halda vegna þess alvarlega ástands sem neyslunni/fíknini fylgir. Fram að þessu hefur fólk sem lendir í þessari ógæfu þurft að sækja alla aðstoð til Reykjavíkur og hafa margir einfaldlega ekki tök á því vegna ýmissa aðstæðna og jafnvel haft slæmar afleiðingar af þeim sökum. Með því að vera með aðstöðu hér á Suðurnesjum og hjálpa þeim einstaklingum sem þurfa á því að halda, og vilja þiggja aðstoð, erum við um leið að vinna gegn áfengis- og fíkniefnavandanum. Við teljum að þetta starf muni án efa minnka neyslu, kaup og sölu efna, draga úr afbrotum og hafa margvísleg önnur jákvæð áhrif þessu tengt. Allt þetta er til hagsbóta fyrir fólkið sem hér býr og alla þá sem vinna að forvörnum og bættu mannlífi á Suðurnesjum. Eftir að einstaklingar hafa fengið þá ráðgjöf, stuðning og eftirfylgni sem þeir þurfa á að halda, og byggt sig upp andlega og líkamlega, þurfa þeir að viðhalda þeim bata sem hefur náðst. Lundur er með aðstöðu í Sjálfsbjargarhúsinu í Reykjanesbæ, þar sem Björgin var áður til húsa.Faglærður starfsmaður er þar einu sinni í viku til að byrja með, nánar tiltekið á mánudögum. Mun hann vera til viðtals og veita ráðgjöf, einnig að skipuleggja þá eftir-fylgni, stuðning, forvarnir o.fl. sem hann telur þurfa. Ath að það þarf ekki að vera vandamál í gangi til að fá viðtal og fræðast um þennan vágest, heldur fyrirhyggja að forvörnum. ( Vertu undirbúin ) Nánari upplýsingarErlingur Jónsson S: 772-5463 www.lundur.net
|
|
Teljari
Gestir: 3115653
|