Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Febrúar 2007 arrow Fyrirhyggja að forvörnum
Fyrirhyggja að forvörnum PDF Prenta
þriðjudagur, 06 febrúar 2007

 Það er alveg hræðilegt það sem maður heyrir í fréttum þessa dagana, allskonar ofbeldi, bæði andlegt og líkamlegt af versta toga sem maður getur hugsað sér. Enn bætist í hópinn fólk sem þarf virkilega að fá hjálp og það strax. Fólk sem hefur verið kynferðilega misnotað, þarf mikla hjálp, bæði frá geðlæknum, sálfræðingum, prestum og einnig stuðning, umhyggju og ást frá sínum nánustu og ráðgjöfum. Þau þurfa svo sannarlega svona aðstöðu þar sem þau geta komið saman og rætt og miðlað af sinni reynslu, eins og fíklar, alkóhólistar, aðstandendur þeirra og fleiri þurfa einnig að gera til að geta hjálpað öðrum...

Hvað haldið þið að það sé  til mikið af svona veiku fólki í kring um okkur sem reynir jafnvel að að fara leynt með það, svo bitnar það bara á öðrum ástvinum. Í rauninni fer það ekkert leynt, því það vita það allir en þora bara ekkert að segja eða gera og eru svo sjúklega meðvirk. Svona gerir sjúkur annan sjúkan. Svo eigum við að vera besta forvörnin fyrir börnin okkar, að hugsa sér aðra eins vitleysu. Við þurfum að berjast fyrir því að fá svona aðstöðu hér á Suðurnesin, hún kemur ekki upp í hendurnar á okkur. Rífum okkur upp á rasskatinu og látum í okkur heyra, kíkið á bloggið mitt og svarið könnun og skrifið mér, komið með hugmyndir verið með og fylgist með, sýnið stuðning þó það sé ekki þekkt fyrirbæri hér á Suðurnesjum, þá er það sem virkar. Við eigum allavega rétt á að fá svona aðstöðu til reynslu, og sjá hvort að hún sé ekki til bóta..Það vanntar húsnæði og það vanntar fjármagn og síðan þarf að nýta sér þessa aðstöðu. En það þýðir þá ekki að segja, farðu fyrst ég kem svo. Ef við viljum hjálp þá verðum við að sækjast eftir henni, það gerði ég, annars heldur okkur bara áfram að líða illa er það ekki? 


Ert þú í bata og villt gera meira?

Það eru fleiri en við sem þurfa á hjálp að halda, er það ekki? Við megum ekki gleyma okkur. Látið endilega eins og ykkur sé ekki sama þó ykkur sé sama og sýnið æðruleysi. Láttu skoðun þína í ljós og vertu með. Sýnum að Suðurnesjafólk getur staðið saman. Þú getur átt hlut að því að geta hjálpað öðrum og sjálfum þér í leiðinni.

Kv. Elli
Erlingur Jónsson

Smellir: 2319
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?