|
fimmtudagur, 22 október 2009 |
|
Ekki er ég að alveg að átta mig á því hvernig heilbrigðiskerfið virkar, en allavega finst mér það vera óréttlátt hvað varðar alkóhólista og fíkla sem eru að leita til þeirra á sínum verstu dögum.
Búnir að taka of stóra skammta ( overdosa ), fá þá aðhlynningu sem til þarf og sendir síðan út á gaddin aftur. Og ef viðkomandi vill hætta, taka sig á en getur það ekki þar sem hvergi er pláss fyrir þar sem þau þurfa meðan frákvörfin standa yfir, fá jafnvel ekki það magn af lyfjum til niðurtröppunar sem þarf . Er því erfitt fyrir fólk að taka að sér einstaklinga í svona ástandi. Þrátt fyrir þetta ástand sem er víða í þjóðfélaginu og allar þær hörmungar sem dynja yfir okkur á að skera niður til heilbrigðismála. Hvar endar þetta fólk, jú á götuni, gröfuni? HVAR?? Hvers eiga aðstandendur þessa einstaklinga að gjalda sem eru jafnvel orðnir veikir út af ástandinu og geta því lítið að gert eða eru erlendis í fríi ef hægt er þá að kalla frí þar sem áhyggjur, kvíði valda því að þau geta ekki slakað á. Þetta snertir ekki bara einn einstakling heldur hefur þetta áhrif á fjöldan allan af fólki. Foreldra, systkini, ættingja, vini og aðra vandamenn. Oft þarf að svifta þau sjálfræði og eða lána þeim dómgreind þar sem þau eru ekki að hugsa skýrt. Það er í raun forvörn að taka að sér veikan einstakling því það getur oft hjálpað þeim sem það gerir, ef hann hefur verið í svipaðri stöðu sjálfur en búin að taka á sínum málum og er í bata. Að hjálpa öðrum hjálpar maður sjálfum sér í leiðini. ATH aðstöður þurfa líka að vera réttar til að geta tekið svona að sér, það er ekki fyrir hvern sem er. Einn sem lenti í þessari aðstöðu fyrir skömmu vill koma á þakklæti til þeirra sem tóku hann að sér, sviftu sig öllu ( Sjálfræði og SÍMA )og hlúðu að sér, og er hann þeim ævinlega þakklátur.Kveðja Erlingur Jónsson772-5463
|