|
Lundur á Sandgerðisdögum. |
|
|
|
fimmtudagur, 13 ágúst 2009 |
|
Róleg og notaleg kvöldstund í safnaðarheimilinu 24 ágúst Kl. 20.00 Erlingur Jónson forsvarsmaður forvarnarverkefnisins Lundur mun halda kynningu á starfsemi Lundar. Ásamt honum mæta einstaklingar sem ætla að deila með okkur reynslusögum sínum. Í framhaldi ætlar hljómsveitin Klassart að halda tónleika. Á tónleikunum verður komið víða við, tekin verða lög af væntanlegri breiðskífu hljómsveitarinnar er fengið hefur heitið „Bréf frá París“ í bland við eldra efni og einstaka ábreiður. Gaman er að segja frá því að Erlingur og meðlimir Klassarts, systkinin Pálmar, Fríða Dís og Smári Guðmundsbörn eru allir Sandgerðingar. Hvetjum við sandgerðinga og aðra gesti að mæta og eiga rólega kvöldstund saman Verð 500 kr. Nánar um Sandgerðisdaga www.sandgerdisdagar.is
|