Töluvert hefur verið um það undanfarið að foreldrar hafi verið að hringja vegna ungmenna sinna sem hafa mælst jákvæð og/eða verið í annarlegu ástandi vegna neyslu áfengis og fíkniefna. Hvað er til ráða, hvað eigum við að gera.
Flestir vilja fá einhverja skyndilausn en hún er því miður ekki til, láta þar staðar numið. SKÖMM og STOLT gerir það að verkum að fólk fer ekki lengra, ætlar að gera þetta við eldhúsborðið heima á bak við luktar dyr. ENDALAUS FELULEIKUR, Það er ekki lausn heldur gerir bara enn meiri skaða. Það gerist ekkert gott ef fjölskyldu meðlimur, faðir, móðir ætlar að reyna að hjálpa til, þó við vitum að hann meini allt gott með því, það bara gengur ekki. Slæm samviska gerir það að verkum að það reynist erfitt fyrir einhvern nákomin að komast þar inn fyrir.Það er ekkert mál að ánetjast eins og ástandið í þjóðfélaginu er í dag en það er fjandi erfitt að koma sér út úr þessu aftur og getur oft tekið mörg ár ef það þá tekst á annað borð. Ekki gera ekki neitt, ekki bíða með að gera eitthvað því það hefur áhrif á allt og alla, sundrar heilu fjölskyldunum því miður, við fáum ekkert að gert. Það getur líka sameinað ef eitthvað er gert strax og gert rétt. Einnig hafa nokkur hringt sjálf og beðið um að hjálpa sér að komast í einhverja meðferð. Efnin sem þau eru að nota er nánast allt sem þau komast yfir til að komast í breytt ástand. T.D. GAS, BENSÍN, LÍM, LAKK, ÁFENGI, FÍKNIEFNI, SPRAUTUR, HESTALYF AUK SVOKALLAÐS LÆKNADÓPS. Við skulum vona að nýju ríkisstjórnar flokkarnir endurskoði sýna forvarnarstefnu sem snýr að áfengis og fíkniefnum, því hún er nánast ENGIN.. Eins og VF hefur skýrt frá mjög reglulega, þá hefur Lögreglan þurft að hafa þó nokkur afskipti af ungu fólki á aldrinum 15 – 17 ára i annarlegu ástandi og jafnvel á akandi um götur bæjarins og spá ekkert í afleiðingar þess.Þegar neysla er hins vegar í gangi skiptir ekkert annað máli, algjört siðleysi. Skaða mann og annan, eyðileggja og misnota. HVAÐ MEÐ ÞAÐ, bara gaman þangað eða þau halda það, þangað til áhrifin dvína og eða morgunin eftir. Oh my god hvað hef ég gert. Svo líður það hjá og neyslan hefst aftur og aftur ef ekkert er að gert, enn meiri kvöl fyrir sig og aðstandendur sína. Lundur nýtur góðrar samvinnu við lögreglu, heilbrigðisstofnun Suðurnesja, félags og fræðslusvið Reykjanesbæjar, foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ, samtakahópinn, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og fleiri góðra aðilla. Kveðja, Erlingur Jónsson Símar: 772-5463 og 864-5452
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
---- www.lundur.net
|