Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Fangelsismál PDF Prenta
miðvikudagur, 01 apríl 2009

Ég hlustaði á móður sem á dreng í fangelsi og fór því að hugsa svolítið um það hvort þetta sé endilega rétta leiðin . 

Mér finnst þegar það er verið að senda mjög ungt fólk í fangelsi sem er jafnvel enn í neyslu, er ekki tilbúið og hefur ekki þroska til að taka þá ákvörðun um að það vilji breytt ástand.

Þegar fólk í þessari stöðu og er sett þarna inn er oftar en ekki, ekkert annað sem bíður þeirra en meiri neysla og enn meiri fróðleikur um undirheima landsins. Þeir sem fara í þessu ástandi t.d. inn á Litla hraun koma mjög líklega  forhertari út.

 

Lenda aftur og aftur í útistöðum við lögin  og ná ekki  eða eiga erfitt með að fóta sig í lífinu.

Ég veit að það kostar þjóðfélagið mikið að vista fólk inni, en hvað kostar að hafa þetta fólk úti þar sem það hefur ennþá meiri eyðileggingar mátt ? Sjúkra, læknis, trygginga, lögæslu og annar kostnaður svo ekki sé minnst á aðstandendur þessa fólks.

Held að þetta sé miklu miklu dýrara þegar uppi er staðið.

Væri ekki hægt að finna  betri stað ? Reyna að hjálpa þeim á uppbyggilegri hátt.

Hvað t.d með að nota einhvern heimavistaskólann ? Núpur í Dýrafirði gæti t.d hentað vel að mínu mati. Ráða þar t.d. ráðgjafa, Sálfræðinga, Geðlækna og/eða þá sem þarf til að svona staður virki.

Það væri hægt að vera með einhverskonar búfénað þarna og hina ýmsu ræktun, þar sem allir myndu gegna ákveðnu hlutverki.  Sem sagt afeitrun, fræðsla, sjálfstyrking, agi, vinna o.s.fr.

Þetta er eitthvað sem vert er að skoða held ég

Erlingur Jónsson

772-5463

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Smellir: 5138
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3115743