Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Janúar 2007 arrow Góðir hlutir gerast hægt.
Góðir hlutir gerast hægt. PDF Prenta
mánudagur, 29 janúar 2007

Föstudaginn 26. jan hittust  bæjarstjórarnir okkar og fóru yfir þessi uppbyggingar og forvarnarmál sem ég hef borið undir þá og ræddu þau vel og vandlega, og  gera þeir sér fulla grein fyrir alvarleikanum og þörfinni á að hafa slíka þjónustu á svæðinu. Þeir hafa nú tekið höndum saman og styðja þeir þetta verkefni heils hugar. Einnig ræddi ég við Sigurjón heilsugæslulæknir og fáum við fullan stuðning frá honum og segir hann mikla þörf á þessu...

Eins og flestir hafa sagt, þó fyrr hefði verið. Þannig að ég er búin að ræða málin við flesta fagaðilla sem ég tel þurfa að koma að svona verkefni að ég held, ef ekki biðst ég velvirðingar á því og vona ég að þeir gefi sig fram við mig, því ég vill ekki ganga fram hjá neinum í þessu. Þannig að næsta mál hjá mér nú er að ná saman þingmönnum okkar og ræða við þá um framhaldið og framtíð okkar í þessum málum. Vonandi verða þeir eins jákvæðir og allir hinir og umfram allt þá þurfum við að sýna samstöðu og standa saman að þessum málum. Við hljótum að geta það þótt að við séum Suðurnesjamenn.


Smá hugleiðing
Oft er spurt hvernig hefur þú það og yfirleitt er svarið.
Ég hef það bara fínt eða mér líður ágætlega.
En innst inni líður manni oft illa út af einhverjum aðstæðum.
Þetta veldur t.d. kvíða, ótta, þunglyndi og ýmisum öðrum óþarfa kvillum.
Þetta er ein ástæðan fyrir því að það er þörf fyrir svona aðstöðu.

 

Erlingur Jónsson

Smellir: 2607
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?