Í skíðaferðina, www.blafjoll.is verður farið af stað frá SBK Reykjanesbæ og er þetta fyrir alla þá sem hafa áhuga á að taka þátt og nota tækifæri til að tengjast sínum nánustu og taka þar með þátt í að styðja hvert annað, sína samhug og kynnast starfi Lundar og fleira.
Er þetta vonandi bara byrjunin og hluti á skemmtilegu starfi Lundar.
Skráningar í fyrri ferðina ( skautahöllina )þufra að vera búnar 10 janúar 2009 svo hægt verði að skipuleggja hana sem best.
Skráning í seinni ferðina ( Bláfjöll ) sem verður sennilega í feb-mars er einnig gott að fá tímalega svo hægt verði að hringja út og fá staðfestingu, þar sem ekki verður nema 3 daga fyrirvari í þá ferð þar sem þörf er á að fylgjast með veðurspánni.
Það verða engin aldurstakmörk í þessar ferðir svo það er um að gera að nota tækifærið og sameina fjölskylduna og eiga góðar stundir saman.
Skráningarblöð liggja víða frammi. T.d í Lundi , Cafe Keflavík og fleiri stöðum.
Einnig er skráning í símum 772-5463 og 864-5452 og á mailið.
Gerum okkur góðar stundir með fjölskyldunni.
Erlingur Jónsson.
www.lundur.net
l
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það