Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Nú eru erfiðir tímar PDF Prenta
mánudagur, 15 desember 2008

Nú eru erfiðir tímar hjá okkur landsmönnum því miður, allt að hrynja 

hjá og í kring um okkur, einhvern vegin hefur það gerst á ógnar hraða.

Hvað ætlum við að gera ? TAKA ÞÁTT Í ÞESSU ?  NEI TAKK helst ekki, en 

getum við eitthvað gert ?

Við höfum svo sem lítið sem ekkert með þetta að gera, en við getum 

hugsað um okkar eigin líðan.

Allir okkar draumar, væntingar, óskir um betra líf og góða framtíð 

hverfa á einu augnabliki eins og dregið hafi fyrir sólu, EF við 

leyfum því að gerast. Látum EKKI hugfallast, verum bara ekki með í 

þessu leikriti, það eru lélegir leikarar sem fara með aðal- 

hlutverkin og  þeim hefur ekki tekist vel til. Við verðum að halda 

okkar striki, þó svo að við verðum vör við kvíða, ótta, þunglyndi, 

reiði og aðrar slæmar tilfinningar. Það eru til fullt af 

hjálpartækjum, t.d aðstoð sem við höfum aðgang að. Við verðum bara 

einfaldlega að bera okkur eftir henni, hún kemur ekki til okkar, svo 

mikið er víst. Verum fyrri til, leitum aðstoðar, verjum heilsu okkar 

gegn þessum kvillum, brjótum odd af oflæti okkar og verum stollt af 

því. Eitt viðtal getur gert gæfumunin og komið okkur af stað til að 

fara að hugsa um eigin líðan, um leið og okkur fer að líða vel þá 

verður allt svo miklu betra í kringum okkur.

 

Hver kannast ekki við það að kenna alltaf  öðrum um til að koma 

athyglinni frá sjálfum sér. Þetta er því miður mjög algengt 

fyrirbæri, sérstaklega hjá þeim sem eiga við áfengis og/eða 

fíkniefnavanda að stríða, nú eða kvíða, þunglyndi og fl. Afneitunin 

er svo mikil að það er ótrúlegt. Hvað þarf að fórna miklu áður en 

eitthvað er að gert ? Yfirleitt er það öll fjölskyldan sem verður 

fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu. Það er ekki til sú fjölskylda sem 

ekki er í sárum ef einhver innan hennar er í neyslu, hvort sem það er 

barn, maki eða foreldri. Þegar svona er komið, er mjög erfitt að 

græða þau andlegu og líkamlegu sár sem orðið hafa af völdum þessa 

sjúkdóms. Enn og aftur, hvað er til ráða ? Nýta þau hjálpartæki og  

sem við höfum, LUNDUR eitt þeirra.

Minni á dagskránna á mánudögum, það er líka hægt að fylgjast með því 

sem er að gerast hjá Lundi á www.lundur.net . ÞÚ mátt hafa samband í 

síma  772 5463 á milli kl. 11- 13 alla virka daga, kannski þarftu 

bara að spyrja um eitthvað, nú eða smá spjall. Yfirleitt er líka 

minnsta mál að finna annan tíma til að hittast í Lundi.

Mundu, LUNDUR er fyrir alla sem þurfa á aðstoð að halda vegna áfengis og vímuefna, 

ALLA.

Okkar bestu óskir um friðsæla og gleðilega hátíð.

 

Erlingur Jónsson

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

772-5463 og 864-5452

Smellir: 5190
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3115851