Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Helgina 1-2 nóvember 2008 verður haldið Námskeið um meðvirkni (Fjölskyldumeðferð) PDF Prenta
mánudagur, 13 október 2008
Þessi fjölskyldumeðferð er nú í fyrsta sinn hjá Lundi og verður haldin EF næg þáttaka verður.  

 

Námskeiðið eru einkum ætlað aðstandendum alkóhólista/fíkla, þ.e.a.s  mökum, börnum og foreldrum. Líka alkóhólistum í bata sem telja sig þurfa að taka á meðvirkni sinni. 

Allir sem halda sig vera að glíma við meðvirkni eru velkomnir.

Á námskeiðinu er leitast við að auka þekkingu og skilning á vímuefnasjúkdómnum, einkennum, birtingarformi og áhrifum á fólk sem er í návígi við sjúkdóminn. 

Námskeiðið stendur laugardag og sunnudag milli kl. 09:00 og 16:30.

Því er skipt upp í hópastarf og fyrirlestra.

 

  Fyrirlestrarnir eru:

 

1) Fíknisjúkdómar

2) Meðvirkni 1 og 2

3) Sjálfsvirðing

4) Óheppilegur stuðningur

5) Bati og breytingar

6) Kynning á starfi Al-Anon

 

Skráning og nánari uppl veitir

Erlingur Jónsson í síma

772-5463/864-5452

eða með rafpósti   Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Smellir: 6084
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3119472