Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Janúar 2007 arrow Öflugt uppbyggingarstarf á Suðurnesin.
Öflugt uppbyggingarstarf á Suðurnesin. PDF Prenta
fimmtudagur, 25 janúar 2007

Að geta hjálpað einum sem getur hjálpað öðrum hlýtur að vera frábær tilfinning, er það ekki ? Það hjálpar einnig þeim aðila sem er að hjálpa öðrum.( Sniðugt ) 


Með því að stuðla að góðu uppbyggingarstarfi hér á Suðurnesjum og hjálpa þeim einstaklingum sem þurfa á því að halda og vilja það, erum við um leið að vinna gegn áfengis og fíkniefnavandanum. Með því að hrinda þessu í framkvæmd myndu bæjarfélögin  hugsanlega geta (vonandi ) minkað neysluna, kaupin, söluna, afbrotin og jafnvel  haft áhrif á innfluttning á öllum þessum viðbjóði. Eftir að einstanlingarnir hafa fengið allan þann stuðning í eftirmeðferð sem þarf og byggt sig upp andlega og líkamlega þurfa þau að gera öryggisnet í kringum sig ,til að viðhalda þeim bata sem þau náð, og til að forðast þá sem ekki eru tilbúnir eða þora ekki að leita sér aðstoðar, og sérstaklega þá sem vilja hafa þá enn í neyslu( sölumenn )...

Þetta á einnig við um aðstandendur og aðra sem tenjast þeim einstaklingum á einhvern hátt. Þannig lít ég á þessa aðstoð.( hjáp) Það má einnig líta á það þannig að það hlítur að vera mikill sparnaður í því ef t.d.löggæslan okkar þarf ekki að vera að eltast við og sitja um smáfólkið og einbeita sér að þeim stóru, eða vinna að sínum eigin forvarnarmálum eða öðru sem er í bið, sem  ekki hefur verið hægt að komast yfir. Einnig má nefna fleiri sem þetta hefur áhrif á t.g.,heilsugæsluna,tryggingar, atvinnuleysistryggingasjóður,félagssjóð svo eitthvað sé nefnt. Það er sennilega af nógu að taka. Það væri gott ef almenningur fái að sjá einhverjar upplýsingar frá forsvarsmönnum þeim sem hafa með þessi mál að gera, hvort að eitthvað sé að gerast í þessum málun og ef svo er í hvaða farveg eru þau í dag.

Ég efast ekki um að forsvarsmenn byggðalagana eru að huga að þessu og geri sér grein fyrir öllum þeim skaða og hættum sem hlýst af þessum völdum, og þeim kostnaði og andlegri vanlíðan sem þessu fylgir. Athugið að góð heilsa sparar peninga.

Nú eru jólin að nálgast, sem á að vera tími gleði og friðar, en er einnig mjög erfiður tími fyrir marga sem eru að þjást úr fíkn, þunglindi, kvíða og fl. Hvernig væri að taka okkur saman í andlitinu, sína samstöðu okkar og að við getum staðið saman í svo mikilvægum  málum  sem þessum og halda kraftmikinn og öflugan opin fund um uppbyggingu og forvarnir sem allir aðilar á Suðurnesjum koma að.

Góð samvinna skilar sér, þó svo að við getum ekki staðið saman um þingmennina okkar, þá getum við barist saman í þessu verkefni.

Suðurnesjamenn stöndum saman. Við getum þetta.


Það eru sem betur fer margir sem hafa snúið við blaðinu og lifa góðu lífi, en þeir meiga bara ekki gleyma sér. Það er auðvelt, og það hefur farið illa fyrir sumum sem hafa gleymt sér, og það gerist hratt. Til að fyrirbyggja að það gerist er t.d. tilvalið  að mæta á fundi og eða hjálpa öðrum.(sjá dagskrá á www. aa.is )

Erlingur Jónsson

Smellir: 2255
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?