Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Janúar 2007 arrow Uppbyggingarstarf á Suðurnesin. Á heilsan ekki að vera í forgangi?
Uppbyggingarstarf á Suðurnesin. Á heilsan ekki að vera í forgangi? PDF Prenta
fimmtudagur, 25 janúar 2007

Ég hef rætt við þó nokkra einstaklinga á aldrinum 16 – 73 ára innan og utan AA samtakana og aðstandendur um þörfina á því að fá hér á Suðurnesin aðstöðu fyrir eftirmeðferð og uppbyggingu fyrir þá  einstaklinga  sem þurfa á  því að halda og hjálpa þeim að komast aftur á vinnumarkaðin, í skóla og til að fóta sig í þjóðfélaginu. Segja þau þörfina á þessu vera lífsspursmál fyrir sig hér á Suðurnesjum og ætti að vera algjört forgangsverkefni. Finnst þeim allt of mikið rætt og lofað en ekkert gert eða tekur allt of langan tíma. Þeir sem ekki geta nýtt sér svona aðstoð eiga í hættu að loka sig inni og þar er ekki gott að vera...

Það væri notalegt fyrir þessa einstaklinga að geta gengið  uppréttir um götur bæjarins með von í hjarta, og þurfa ekki alltaf að vera að líta um öxl. Þetta þarf að vera fyrir alla  þá sem þurfa á einhverri aðstoð að halda  sem tengist  áfengis eða fíkniefnavandanum (t.d meðvirkni aðstandanda, þunglyndi, fráfall, skilnað og aðra fjölskyldu aðstoð) eða einhverja sambærilega þjónustu og veitt er við slíku með góðum árangri.

Nokkrir aðillar sem ég ræddi við hafa fallið í svartnættið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, eftir að hafa dottið úr prógrammi og bara vegna þess að þau komust ekki til Reykjavíkur. Þetta finnst þeim mikil skömm og missa allt það litla sjálfsmat og alla tilfinningu fyrir lífinu aftur og finnast þau vera eins og skítur undir skóm annars manns og guð má vita hvað þau gera sér og öðrum. Á hverjum lendir það ? Sumir eru próflausir og lendir þetta þá á einhverjum nákomnum að keyra. Hvers á hann að gjalda og/eða fjölskyldan ?

Suðurnesjamenn, takið ykkur saman og látið í ykkur heyra svo eitthvað verði gert.

Þetta á við öll Suðurnesin.

Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Garður, Grindavík og Vogar ( Talið saman )

Að geta hjálpað einum sem getur hjálpað öðrum hlýtur að vera frábær tilfinning, er það ekki?

Erlingur Jónsson

Smellir: 2403
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?