|
Við hjónin fórum á frábæran fund um forvarnir og fíkniefnavandann, sunnudagskvöldið 29/10 kl.20,00 sem þingismaðurinn okkar Gunnar Örn Örlygsson boðaði til í 88 húsinu. Þar mættum við tímalega til að fá sæti, því að við áttum von á að það yrði fullt út úr dyrum, en svovar því miður ekki,þar mættu örfáar manneskjur sem er ekki sama um hvað er að gerast í okkar bæjarfélagi og hjá okkur sjálfum. Foreldrar og aðstandendur kvarta og kveina um að ekkert skuli vera gert í sambandi við forvarnir og fíkniefna vandan og láta svo ekki sjá sig á svo mikilvægum og fróðlegum fundi sem þessi var. Spurning hvort þetta flokkist undir meðvirkni veit ég ekki. Meðvirkni er stórhættuleg...
Foreldrar, systkini, ættingjar og vinir eru mjög meðvirkir þeim sem eru í vandræðum af einhverju tagi. Borga fyrir þau skuldir, lána þeim, keyra fram og til baka og.s.frv. Gera sér ekki grein fyrir því hvað þau eru að gera þeim. Sumir foreldrar eru svo stoltir að þau gera allt til að fela hvernig fyrir börnunum þeirra er komið Veldur þessi meðvirkni allgjöru ábyrgðarleysi, tillitsleysi, stjórnleysi,ótta ,kvíða og jafvel geðveiki.Ef þau eru í dópi/áfengi eða öðru, þá er bara verið að flýta fyrir því að þau verði veikari og ná sér jafvel aldrei út úr þessu, og missa alla sjálfsvirðingu og detta í þunglyndi. Þau biðja um pening fyrir bíó, bensín á bílin, video eða einhverju öðru en kaupa efni eða annað slíkt fyrir peninginn. Hvað erum við annað að gera en að skemma þá einstaklinga sem við elskum. Hvað er í gangi. Leitið eftir fræðslu og aðstoð ef þarf t.d hjá aa.is -- saa.is-- fjolsmidjan.is—marita.is, eða einhverjum öðrum aðilum,einnig er gott að tala við fólk sem er búið aðganga í gegn um þetta og eru að gera eitthvað í sínum málum..Ekki ganga með þessar byrgðar á herðunum ykkar ef hægt era ð losna við það. Ekki láta fjöskylduna flosna upp þar sem hægt era ð komast hjá því. Þetta á ekki að vera feluleikur.Lærðu að segja nei og standa við það þó að það sé óþægilegt. Þetta er ekki síður hættulegt okkar heilsu, þar sem við getum verið jafn sjúk og sjúklingurinn í meðvirkni okkar, sem fellst í ótta, kvíða, óöryggi og fl. Að segja NEI og standa við það er smá vísir að bata. Foreldrar eru blindir á sín egin börn, sjá ekki hvað era ð gerast. Hlustið á aðra, þeir hafa yfirleitt rétt fyrir sér þó svo að það sé sárt. Við þurfurm að fá sambærilega þjónustu og fræðslu og td. Sáá, AA, Fjölsmiðjan, Marita og fleiri veita, sem er fyrir alla aðila á öllum sviðum. Erlingur Jónsson
|