|
Oft er talað um að jólamánuðurinn sé erfiður fyrir marga, það er jú oft vegna þess að sumar fjölskyldur ná ekki að sameinast. Þá getur komið upp söknuður, kvíði og önnur vanlíðan, dimmt er yfir öllu, en þetta á að vera tími gleði og friðar. Það eru svo önnur erfið tímabil.
Nú fer enn eitt þeirra að herja á marga, þá sem ekki hafa sterkan vilja, og líka þá sem ekki hafa byggt sig upp af fullum krafti í vetur, komið sér upp andlegum forða og styrk.Nú þegar sumarið er að ganga í garð, vill fólk oft slaka á og hugsar sem svo, ég ætla bara að taka mig á aftur í haust eða vetur, nú eða bara einhverntíman. Það er svo mikið að gera á sumrin t.d fara þetta, fara hitt og engin tími til að halda sér í einhverju prógrammi, sem er í góðu lagi, EF það er einhver regla á því. Allt í lagi að draga úr, bara ALLS ekki hætta alveg. Öll vitum við hvað það getur verið fjári erfitt að koma sér aftur af stað, alveg sama hvað það er, hvort það er í prógramm eða eitthvað annað. Ég hef líka fylgst með nokkrum sem núna nýverið hafa lent aftur úti, það er MJÖG erfitt að horfa á þau falla og geta ekkert að gert, bara horft á. Þau fyllast m.a af skömm, niðurlægingu og þunglyndi, eiga erfitt með að biðja um aðstoð, forðast þann eða þá sem hafa verið með þeim í batanum, svo og vini sína og vandamenn. Hætta að svara í símann, eða einfaldlega slökkva á honum svo að það náist örugglega ekki í þau. Þetta veldur aðstandendum og öðrum sem þykja vænt um þau og jafnvel elska, miklum ótta, kvíða og öðrum óþægindum. Hafa þau fulla ástæðu til að verða óttaslegin og búast við hinu versta. Við vitum að sum eiga þau því miður ekki afturkvæmt, svo illa getur þessi fjandi farið með fólk. Við verðum svo vanmáttug, hugsum: get ég ekki gert neitt. Það er því enn meiri ástæða fyrir aðstandendan að vera sterkur, hafa gert og vera að gera eitthvað fyrir sjálfan sig, annars dregst hann líka hratt inn í þennan andstyggilega pakka sem meðvirknin er má ALDREI gleyma sér, frekar en þeim sem við teljum að sé veikur. Ef þau ná ekki að koma inn rétta hugarfarinu og snúa fljótlega við, þá er nokkuð víst að þau fara HRATT á þann stað sem þau voru á áður, fara jafnvel enn neðar. Gerist það mjög hratt, því miður. Lundur býður upp á hina ýmsu þjónustu, þó okkur finnist aldrei nóg, stendur það til bóta með haustinu. Frá og með 1.juní 2008 hefur Lundur gert 1 árs leigusamning við Sjálfsbjörg um húsnæðið að Fitjabraut 6c, Björgin var það áður til húsa. Nú höfum við meira næði og gott aðgengi.Verða þá einhverjar breytingar hvað varðar þjónustu, auglýsum það síðar. Erlingur Jónsson www.lundur.net
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
864-5452
|