Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Nóvember 2007 arrow Smá hugleiðing í skammdeginu
Smá hugleiðing í skammdeginu PDF Prenta
föstudagur, 30 nóvember 2007

Nú er sá tími komin sem okkur finnst eigi að vera tími gleði og friðar, en  oftar en ekki læðist þunglindi, kvíði, fíkn og ótti að okkur á þessum tíma ef við erum ekki vakandi fyrir því.Margir hugsa sem svo að þau geti ekki glatt neinn og sé bara til ama og eru fyrir, en það er bara alls ekki rétt. Við meigum ekki gleyma því að bara það að vera til staðar gefur og gleður mikið. Þá meina ég að vera til staðar og vilja það sjálf/ur, ekki af einhverri hvöð. Hafa vilja til að gera eitthvað gott fyrir sjálfan sig, leita sér aðstoðar ef með þarf.

Af hverju að vera að kvelja sjálfan sig meira en þarf  þar sem hjálpin er til staðar allt um kring, t.d hjá hjá fjölskyldunni, vinum, Lundi og fleirum.
Besta gjöfin þarf ekki að vera stór eða dýr gjöf, heldur er nóg að vita til þess að einhver er að gera gott fyrir sjálfan sig, það er það sem gleður aðra. Við meigum ekki fara að velta okkur upp úr því, þó að við höfum gefið lítið eða ekkert síðustu jól eða þar síðustu og ætla að fara  bæta það upp núna það eykur bara á vanlíðan aftur og gleður engan. Það er ekki það sem fjölskildan vill, því það kallar enn og aftur á þunglindi, kvíða, ótta, fíkn og fleira sem er slæmt fyrir alla. Hún vill að öllum líður vel og að allir séu sáttir við sjálfan sig.

Sonur minn var t.d skakkur mörg síðustu jól og áramót  og olli fjölskyldu sinni mikilli vanlíðan, kvíða og ótta af því að reyndi að bæta fyrir með dýrum gjöfum og við leifðum það, því miður. En  sem betur fer er hann í góðum málum í dag og verður vonandi allsgáður þessi jól ef guð lofar. Og í dag er það hanns val ef hann velur þá leið aftur, ekki okkar.

Við höfum ekkert með það að gera en vonum það besta.

Ef að við hugsum um að vinna í okkur sjálfum og læra að takast á við þetta, mun það skila sér áfram.


Tökum höndum saman og stuðlum að góðu uppbyggingarstarfi hér á Suðurnesjum.

Með því að hjálpa okkur getum við hjálpað þeim einstaklingum sem þurfa á því að halda og vilja, og erum við um leið að vinna gegn áfengis- og fíkniefnavandanum.


Sýnum samstöðu okkar og styrk í þessum málum. Gerum aðra stolta af okkur Suðurnesjamönnum í forvarnarmálum.

Munið dagskránna hjá Lundi.

Hún er til þess að hjálpa okkur og er ekki bara fyrir áfengis og fíkniefna sjúklinga, heldur einnig fyrir aðstandendur þeirra og þá sem við teljum að séu í áhættuhóp.

Eigið góðan dag.
Kv. Elli

Erlingur Jónsson

Smellir: 2392
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?