Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Advertisement
Forsíða arrow Gagnasafn arrow Október 2007 arrow Hvað er yndislegra en það
Hvað er yndislegra en það PDF Prenta
þriðjudagur, 30 október 2007

Hvað er yndislegra en það eins og einn segir oft, að vita til þess að börnin manns og aðrir séu að gera góða hluti í lífinu. Hafa vilja og þor til að gera eitthvað jákvætt í sínum málum og láta af sínum eigin vilja og þiggja hjálp frá öðrum. Fá breytt viðhorf til lífsins og vilja leggja sig fram við að hjálpa sjálfum sér og öðrum. Mér finnst það yndislegt í dag að vita til þess að börnin mín og fleiri aðilar eru á réttri leið og eru boðin og búin að hjálpa mér að kynna forvarnarverkefnið Lund og segja frá reynslu sinni.

Það hafa þau gert með því að koma með mér á hinar ýmsu samkomur, skóla og fl.og segja frá reynslu sinni úr heimi áfengis og fíkniefna og afleiðingar þess á sig, fólk sem þeim þykir vænt um og aðra. Er þetta liður í því sem ég hef ákveðið að gera til að kynna Lund og starfsemi þess. Fræða fólk ( börn og fullorðna ) um afleiðingar og hætturnar sem stafa af því að vera í neyslu og eða vera aðstandandi. Það hjálpar þeim mjög mikið sem taka þátt í þessu og segja sögu sína, vitandi þess að það muni hjálpa öðrum.

Hefur þessu verið tekið mjög vel, einnig verið spurur af því hvort ég muni ekki örugglega koma aftur.  Búið er að bóka okkur hjá foreldrafélagi Grindavíkur þann 13. nóvember kl. 20:30 sem verður haldinn í grunnskólanum þar og í tvo skóla fyrir nemendur 8-9 og 10.bekk. Grindavíkuskóla 15.nov og Njarðvíkurskóla þann 28.nóv og vonandi koma fleiri á eftir.

Þeir sem áhuga hafa á því að leggja sitt af mörkum við að hjálpa oðrum og sjálfum sér í leiðini og vera með okkur í þessu geta fengið meiri uppl, hjá mér t.d. með því að  hafa samband í gegnum mailið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða bara einfaldlega bjalla.

 

Kv. Erlingur Jónsson

Smellir: 2500
feed0 Athugasemdir

Skrifa athugasemd
 
 
quote
bold
italicize
underline
strike
url
image
quote
quote
smile
wink
laugh
grin
angry
sad
shocked
cool
tongue
kiss
cry
minna | stærra
 

security image
Skrifaðu stafina sem eru sýndir


busy
 
< Fyrri   Næsti >

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?