Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Foreldra fræðslan
sunnudagur, 23 desember 2007

Þeir foreldrar sem hafa sótt foreldrafræðsluna hjá Lundi ætla að hittast á milli jóla og nýárs, nánar tiltekið fimmtudaginn 27. desember kl.20.00 í húsi Sjálfsbjargar ( Björginn )
Spjallað verður saman um hvernig gengur og pústað út, og deila tilfinningum  með öðrum. Þetta er opið öllum foreldrum sem vilja vera með.

Nánari uppl Elli
864-5452
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það


Erlingur Jónsson

 
Aðsent frá móður
fimmtudagur, 20 desember 2007

Litla stelpan mín.

Ég þekki þetta af eigin raun, á barn sem er á valdi fíknarinnar. Þegar foreldrar eignast lítið barn þá er allt svo yndislegt, barnið þitt litla er svo saklaust og fallegt. Barnið stækkar og verður unglingur, allt er í lagi eða svo heldur maður þangað til annað kemur í ljós. Maður les fréttirnar: Keyrði undir áhrifum fíkniefna, tekinn með svona mikið magn af fíkniefnum, braust inn undir áhrifum fíkniefna, barði mann og annan os.fr Þetta er daglegt brauð, maður les þetta og heldur svo áfram venjulega lífinu sínu ÞANGAÐ TIL....... einn daginn vakna ég við vondann draum, litla saklausa sæta stelpan mín er farin að nota fíkniefni, þetta átti ekki að koma fyrir hjá MÉR. Ég sem reyndi að gera allt svo rétt.......

 
Gleðilega hátíð
fimmtudagur, 20 desember 2007

Lundur biður að guð gefi þér og þínum friðsæla og gleðilega hátíð og þakkar ykkur fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða ( 2007 )

Símanúmer ráðgjafa eru
Hörður: 824-7635 
Vogur/unglingadeild: 824-7666
Lundur/Erlingur: 864-5452

Erlingur Jónsson

 
Síðasti opnunar tími Lundar fyrir áramót er 17. desember
föstudagur, 14 desember 2007

Síðasti tími með dagskrá hjá Lundi fyrir áramót er mánudaginn 17. desember.

Hvet fólk til að nýta sér vel þann dag.
 
Dagskrá mánudagaginn 17.des
Sími: 421-6700


Kl. 10.00 – 16.00        Viðtöl hjá ráðgjafa
Kl. 16.30 – 17.30        Stuðningshópar
Kl. 18.00 – 19.00        Foreldrafræðsla og hópastarf

Heitt kaffi, kakó og kökur Smile


Erlingur Jónsson

 
Lundur þakkar veittan stuðning
föstudagur, 14 desember 2007
Þökkum Fiskmarkaði Suðurnesja fyrir veittan styrk í gær 13. des.
 
<< Byrja < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 Næsta > Endir >>

Úrslit 261 - 268 af 268

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3455246