Velkomin

Velkominn á bloggið mitt. Ég ákvað að setja upp þessa síðu þar sem mér finnst mikil vöntun á umræðu um forvarnir og með þessu vil ég opna fyrir hana. Öllum er velkomið að koma með ábendingar tengt þessu efni.

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breyttog vit
til að greina þar á milli.

Innskráning






Týnt lykilorð?
Advertisement
Forsíða
Frábærri fjölskyldumeðferð lokið
miðvikudagur, 25 janúar 2012

Átti frábæra helgi með góðu fólki, aðstandendum og ráðgjöfum.

 

Takk fyrir mig

Erlingur Jónsson

 
Ertu aðstandandi Villtu hætta að taka ábyrgð á líðan annara og huga að þinni eigin
laugardagur, 14 janúar 2012
 

Helgarfjölskyldumeðferð verður haldin helgina 21 -22 janúar frá kl. 9:00-16:30 báða dagana í  húsnæði   Lundar að Suðurgötu 15 ef næg þáttaka næst.

Þetta úrræði er sérstaklega ætlað þeim fjölskyldum þar sem einhvers konar neysla hefur haft áhrif á líðan þeirra. Kostar aðeins 7000 kr.

Fyrirlestrar í helgarmeðferðinni eru: 

1.    Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn

2.    Hvernig meðvirkni breytir einstaklingum og fjölskyldum

3.    Óheppilegur stuðningur

4.    Sjálfsvirðingin

5.    Sameiginlegur bati fjölskyldunnar  

 

Upplýsingar um meðferðina veitir Erlingur Jónsson

í síma 772-5463

eða á netfangið  Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Gleðilegt nýtt ár og megi það nýja vera ykkur gott.
sunnudagur, 01 janúar 2012
 

Mánudaginn 2. janúar 2012 hefst hefðbundin dagskrá Lundar og byrja að venju með ráðgjafa viðtölum, stuðnings grúppu og foreldrafræðslu.

 

Á miðvikudögum verður opin skrifstofan frá kl. 10 – 12 ef einhverjir vilja nýta sér það.

 

Helgina 21 – 22 janúar verður haldin fjölskyldumeðferð ef næg þáttaka næst.

Nánari upplýsingar um hana í síma 772-5463

Erlingur

 
Óska ykkur gleðilegrar hátíðar.
föstudagur, 23 desember 2011

Lundur óskar þess að

Guð gefi ykkur æðruleysi til að sætta ykkur við það sem þið fáið ekki breytt,

kjark til að breyta því sem þið getið breytt

og visku til að greina þar á milli.

Eigið gleði og gæfurík jól.

 
Hugleiðing fyrir jólahátíðina.
föstudagur, 16 desember 2011
 Nú er sá tími ársins að koma sem okkur finnst eigi að vera tími gleði og friðar, en  oftar en ekki ef við eru ekki varkár læðist að okkur kvíði, ótti streita, þunglyndi, skömm og fíkn, það er oft ómeðvitað ef við erum ekki vakandi fyrir því.
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 10 af 263

Könnun

Ertu sátt/ur að Lundur sé að hefja störf í Reykjanesbæ?
 

Teljari

Gestir: 3078877